Skoða
KYNNINGARMYNDBAND SJÓNARHÓLS
Á morgun fimmtudaginn 18. október hefst 30 ára afmælisráðstefna ADHD samtakanna " Allt sem þú ekki vissir um ADHD og konur, systkini..." Forseti Íslands Hr. Guðni Th. Jóhannesson mun setja ráðstefnuna.
Margrét Erla Maack verður ráðstefnustýra og hver veit nema hún gleypi sverð á milli atriði eða bregði sér í dansskóna. Það verður í það minnsta gaman og fróðlegt á ráðstefnunni.
Boðið verður upp á góðar veitingar og rauntímatúlkun frá ensku yfir á íslensku og öfugt.
Enn eru laus sæti og hægt að skrá sig hér: https://www.adhd.is/is/fraedsla-og-namskeid/afmaelisradstefnan-allt-sem-thu-ekki-vissir-um-adhd-og-konur-systkini...-18.-og-19.-oktober-2018
Hér gefur að líta þá fjölmiðlaumfjöllun sem hefur verið í tengslum við ráðstefnuna að undanförnu:
Viðtal við Vilhjálm Hjálmarsson varaformann ADHD samtakanna á Bylgjunni í bítið: http://www.visir.is/k/fe69f9ac-511a-4506-a13d-1a3d03bbf538-1539679768750
Grein eftir Drífu Björk Guðmundsdóttur sálfræðing og ritara stjórnar ADHD samtakanna sem birtist á visir.is: http://www.visir.is/g/2018181019319/althjodleg-radstefna-um-adhd-fyrir-fagfolk-fullordna-foreldra-ommur-og-afa
Grein eftir Elínu H. Hinriksdóttur formann ADHD samtakanna og Ellen Calmon framkvæmdastjóra ADHD samtakanna sem birtist á kvennabladid.is: https://kvennabladid.is/2018/10/03/salfraedithjonusta-a-ad-vera-hluti-af-hinu-opinbera-heilbrigdiskerfi/
Ef þú kemst bara annan daginn settu þig þá í samband við okkur í netfangið adhd@adhd.is
ÍSLENSKA
POLSKI
ENGLISH